Austurríki 🇦🇹: 29 smit greind - 8,9 milljónir íbúa
Ísland 🇮🇸: 26 smit greind, þar af 8 frá 🇦🇹 - 0,4 m. íbúa
Kannski tilviljun, en ég vil frekar trúa því að við séum með heimsklassa almanna- og sóttvarnir í bland við sérstakan hæfileika Íslendinga til að toppa í krísuástandi.
Ef WOW air hefði aldrei orðið til værum við flest fátækari, færri ferðamenn hefðu komið, krónan hefði verið veikari, kaupmáttur minni, skuldastaða verri o.s.frv.
Það skal ekki gert lítið úr þessu áfalli en hvað sem öllu því líður tekur enginn í burtu allan ávinning síðustu ára.
Dreymir um Veirulokahátíð:
- Kveikt í settinu hjá Heima með Helga
- Orðinu fordæmalaust reist níðstöng
- Heimsmet í hópknúsi
- Framlínufólk fær VIP meðferð
- Þórólfur stýrir brekkusöng
- Kári keppir í sjómann við alla þá sem hann hefur svarað með blaðagrein
Fleiri hugmyndir?
Af hverju er (nánast) enginn að tala um að það sé yfir höfuð hægt að fara í framboð, og láta kjósa sig á Alþingi, fyrir flokk A en hoppa strax yfir í flokk B?
Þykir þetta bara eðlilegt? Var ég að kjósa fólk en ekki flokka? Og þar af leiðandi misskilja Alþingiskosningar?
Mér finnst landlæknir og almannavarnir ekki fá nógu mikið hrós fyrir afbragðs væntingastjórnun og að vera skrefinu á undan öðrum löndum gegn COVID-19. 100% frammistaða.
Núna þarf hagstjórnin það nákvæmlega sama.
Ég er enginn lögfræðingur, en ég kann að reikna og mér sýnist að skaðinn af því að fá ekki einhverja vinnu útaf annmörkum á huglægu mati sé metinn 4x meiri en ef barnið manns deyr vegna mistaka
Fella niður fasteignaskatt bara hjá 70 ára eldri?
Veit ekki hvar ég á að byrja til að lýsa því hversu vond hugmynd það er. Nokkrar myndir eru ágætis byrjun.
Piratar halda áfram að fara fram með algjört rugl um tekjuskatt. Halda að hækkun efsta þreps um 3,75 prósentur skili 34,8 makr.
Miðað við tekjur Íslendinga 2020 skilar slík hækkun 4,1 makr. Hátt í 9-falt ofmat.😬
Ef WOW air hefði aldrei orðið til værum við flest fátækari, færri ferðamenn hefðu komið, krónan hefði verið veikari, kaupmáttur minni, skuldastaða verri o.s.frv.
Það skal ekki gert lítið úr þessu áfalli en hvað sem öllu því líður tekur enginn í burtu allan ávinning síðustu ára.
Dunning-Kruger Íslandsmethafinn fyrir viku: "Eftir viku verða smitaðir líklega orðnir 5.000 og hér eins og á Ítalíu munu 5-10% þeirra veikjast mjög illa"
Staðan nú: 800 smitaðir - 2% á sjúkrahúsi.
Þórólfur 10-0 Frosti.
Villtar ályktanir og staðhæfingar
@frostis
um sóttvarnir, sem fjölmiðlar draga fram eins og sérfræðiþekkingu, setur allan sirkusinn og ruglið í kringum 3. orkupakkann í allt annað samhengi. Óstaðfest Íslandsmet í Dunning-Kruger áhrifum. Færsla á Moggablogginu í verðlaun.
Gifti mig um helgina. Í gestabæklinginn vantaði uppfyllingarefni og ég fékk 2 mín til að finna uppáhalds grafið mitt. Afraksturinn sló í gegn hjá mörgum. Hjá öllum? Vafaatriði.
"Hann segir verðstýringu áhrifaríkustu leiðina til að draga úr tóbaksnotkun."
Salan hefur næstum 5-faldast frá aldamótum á sama tíma og verðið hefur ca. 15-faldast.
Ég ætla að leyfa mér að kalla þessa fullyrðingu ranga, jafnvel bull.
Seinn í partýið en að setja á kjötskatt á sama tíma og þú niðurgreiðir kjötframleiðslu um fleiri milljarða króna er álíka gagnlegt og að nota ausu til að lækka yfirborð sjávar.
Tvö sniðmengi sem ég skil ekki:
1. Vilja flugvöll í Vatnsmýri öryggisins vegna ∩ Vilja færa landspítalann langt frá flugvellinum
2. Finnast þyrludreifing 70+ milljarða króna sjálfsögð ∩ Finnast innviðafjárfesting fáránleg bara af því að hún kostar 70+ milljarða króna.
Árið 2017 voru 81.000 manns á Íslandi með háskólamenntun.
2016 þénuðu háskólamenntaðir 22% meira en grunnmenntuaðir, var 40% 2006.
Sá sem getur látið þetta samræmast ca. 20% árlegri hækkun lægstu launa án þess að allt fari í klessu á skilið Nóbelinn í hagfræði OG eðlisfræði.
Verstu rökin fyrir því að kjósa á tiltekinn hátt er að það megi ekki breyta neinu því það gengur almennt svo vel. Spyrjið Kodak og Nokia hvernig það gengur.
Í ljósi umræðunnar tilkynnist hér með að verðandi eiginkona mín ber óæðri vöru undir belti. Hún var getin með ást, ekki greind í excel en þó kostnaðar-ábatagreind.
Hugmyndin um að það sé vandamál hvað nýjar íbúðir á besta stað eru dýrar og hamla fólki að komast inn á húsnæðismarkað er álíka gagnleg og að glænýr Range Rover sé of dýr fyrir 17 ára ungling sem var að fá bílpróf.
Endurtakist að eilífu:
1. Vandamál á húsnæðismarkaði
2. Tillögur til að hjálpa fólki á húsnæðismarkaði
3. Allir geta leigt og keypt fyrir meiri pening
4. Verð hækkar
5. Aftur á 1. skref.
Ungt fólk hefur setið eftir í tekjuþróun síðustu áratugi, stendur í sífellt meiri samkeppni á vinnumarkaði (t.d. í fjármálageiranum), á sífellt minni von á að komast í stjórnunarstöður o.s.frv:
Ekki skrítið að það sé staðan:
2007 Georg Bjarnfreðarson: Harður sósíalisti sem fer í 1. maí kröfugöngu (ekki skrúðgöngu).
2018 Georg Bjarnfreðarson: Alvarlegur kapítalisti og atvinnurekandi.
Er Georg Bjarnfreðarson öfugur Gunnar Smári?
Áí.🤯 Annar ferillinn nær yfir ca. fjórum sinnum lengri tíma en þeir virðast nákvæmlega jafn langir (fyrir utan að það er ekkert samhengi við aðalatriðið: Þróun faraldursins).
Það var maður í sjónvarpinu mínu að segja að launatengd gjöld væru lág á Íslandi. Það tók 1 mínútu að komast að því að þau eru þau 7. hæstu í Evrópu og í meðallagi á Norðurlöndunum.
Kallið mig klikkaðan, en mér finnst lágmarkskrafa að fólk segi ekki bara eitthvað á prime time.
Ekkert að sjá, bara forseti herlauss NATÓ smáríkis til 20 ára casually að deila jákvæðum viðhorfum þjóðar gagnvart ófyrirgefanlegum stríðsglæpum innrásarhersins þeirra.
Villtar ályktanir og staðhæfingar
@frostis
um sóttvarnir, sem fjölmiðlar draga fram eins og sérfræðiþekkingu, setur allan sirkusinn og ruglið í kringum 3. orkupakkann í allt annað samhengi. Óstaðfest Íslandsmet í Dunning-Kruger áhrifum. Færsla á Moggablogginu í verðlaun.
Hvaða lélegi brandari er það að fækka starfsfólki í leikskólum (engum í yfirstjórn nb.) þegar framundan er frekari fjöglun leikskólabarna þegar einn stærsti árgangur Íslandssögunnar (2021) mætir á svæðið?
Sit á Nauthól. Lít út á göngustíg og sé einhvern gaur með bolta missa hann aðeins frá sér. Hlaupari tekur á móti honum og gefur hann aftur fyrir sig með silkimjúkri hreyfingu. Það reyndist vera
@Eidur22Official
#fotboltinet
Fáránlegustu æsingsmál Íslandssögunnar. Ég skal byrja á nokkrum kandídötum:
- Hundurinn Lúkas
- Mótmæli símans 1905
- Hvítvín og humar á sunnudögum
- Þriðji orkupakkinn
- Minnka kjötframboð hugsanlega kannski í skólum
Hvað meira?
Hérna klikkuð pæling, Skomina þarna dómari, ef þú þarft 100 endursýningar til að sjá hvort þetta sé víti, þá er það vísbending um að þetta sé ekki víti.
Hot take: 95% af öllu tali um skilaboð kosninga er markleysa. Skilaboð kosninga eru að fólk kaus ákveðna flokka í mismiklu mæli - ekkert meira eða minna.
Fjöldi umsagna:
- Breyting klukkunnar: 791
- Veggjöld: 997
- Framtíðarfyrirkomulag fjármálakerfisins í landi þar sem fjármálakerfið fór á hliðina með gríðarlegu tjóni fyrir 10 árum: Núll 0⃣
Starfshópur leggur til að niðurgreiða innanlandsflug um 50% fyrir þá sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu.
Gott og vel, getum við þá á móti fengið 50% niðurgreiðslu húsnæðiskostnaðar?
Hlutir sem meiri eftirspurn er eftir í augnablikinu en kappræður Sólveigar Önnu og Dags B. í sjónvarpi:
- Fótanuddtæki
- Kjötfars
- Kakósúpa
- Skíðaferðir
- NMT símar
- Þátturinn Hringekjan
Fyrirsjáanlegt að þú sért með allt niður um þig ef þú:
1. Treystir á heppni og vitnar í stjörnuspeki
2. Ert hissa á fjölda barna þegar þú vissir fyrir 5 árum hversu mörg eru að fara í grunnskóla og 1-2 árum hversu mörg væru að koma inn
Það má alveg segja: Við klúðruðum þessu.
Er Landspítalinn eini vinnustaður landsins þar sem COVID smit starfsfólks setja allt á hliðina eða er ekki sagt frá því annarsstaðar? Eða er langflestum orðið drull um veiruna (ekki svo) skæðu?
Hlutir sem ég skil ekki:
- Hagatorg
- Skammtafræði
- Krikket
- Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
- Að stuðningur við/andúð á Ísraelsríki fari eftir flokkpólitískum línum á Íslandi
"ASÍ mótmælir fyrirhugaðri lækkun á tryggingagjaldi og segir að það sé „nánast eini skatturinn sem fyrirtæki greiða“."
Hér er á ferðinni yfirgripsmikil vanþekking eða nýtt hérðasmet í ýkjum án atrennu.
Þegar Gylfi kenndi mér var hann óvinsæll hjá þeim sem aðhylltust mest frjálshyggju og kom reglulega inn á mikilvægi þess að horfa á samfélagið í heild og að markaðir leiði oft til óæskilegrar niðurstöðu.
Þess vegna, og þar sem þetta er hárrétt, eru þetta orð með mikla vigt.
Hef alltaf verið í smá vandræðum með að þýða jinx yfir á íslensku:
Núna má er vandamálið leyst, hægt að kalla þetta að "akureyra".
"Ég akureyraði þegar ég talaði um góða veðrið rétt áður en það fór að rigna."
Poor people in rich countries:
Usually the richer the country ➡️ the better off the poor are.
But not always.
The US, Saudi Arabia, and Switzerland are just as rich as Norway, but the poor are closer to the poor in Slovakia, than the poor in Norway.
#dataviz
Þeir Íslendingar sem hafa 574 þús. kr. í heildartekjur á mánuði eða meira, tekjuhæstu 40%, greiða 82% skatta á einstaklinga. Skattbyrðin fer stigvaxandi með hækkandi tekjum.
Rétt upp hönd sem finnst þessar staðreyndir í litlu samræmi við orðræðuna. 🙋♂️🙋♀️
Nei svona í alvöru talað, ætla stjórnvöld í alvörunni ekki að slaka á takmörkunum strax? Algjört lágmark að stíga strax til baka með nýjustu aðgerðir enda bersýnilega ekki á rökum reistar. Í óteygjanlegri merkingu hugtaksins strax.
Uppfært: Í dag eru svo jafn margir inniliggjandi og fyrir 7 dögum (fækkar um 6 milli daga), jafn margir í öndunarvél og í lok desember, og jafn margir á gjörgæslu og fyrir mánuði.
Er ekki alveg öruggt að fallið verði frá nýjustu hertu takmörkunum strax í dag?