Vona smá að antivax trúðar verði með mótmæli þegar sonurinn fer í sprautu svo ég geti bent honum á þá og sagt að svona gerist ef maður er of mikið í iPad og reynir að sleppa billega frá heimanáminu.
Einu sinni var Margrét Friðriksdóttir nemi við lagadeild HÍ. Í tíma í réttarsögu tilkynnti hún Sigurði Líndal hátt og snjallt að það hefði verið villa í bókinni hans. Ártöl færu lækkandi á nokkrum stöðum. Sigurður benti henni á að þetta hefði verið fyrir Krist.
Almannavarnir íhuga nú aðgerðir vegna næturfrosts. Útgöngubann verður til hádegis til að forða hálkuslysum og létta álagi á bráðamóttökuna. Það mun síðan lengjast eftir því sem kólnar.
Aðgerðum verður létt þegar örvunarskammti af mannbroddum hefur verið dreift á öll heimili.
Á Akureyri er snjónum ekið af götunum og út í sjó.
Á höfuðborgarsvæðinu er honum rutt af götum upp á gangstétt. Þar taka önnur tæki við sem ryðja snjónum aftur út á götu. Þaðan upp á gangstétt, út á götu og síðan endar hann á gangstéttunum.
Í þessu ástandi, jafnt andlegu sem samfélagslegu, er mikilvægt að gleðjast yfir litlu hlutunum. Ég er t.d. þakklátur fyrir að hafa fundið þessa daglegu pillu sem hjálpar mér fram úr, eykur framtakssemi og þýðir að mig langar sífellt minna til að fyrirfara mér.
Já ok. Íslendingur að mæta sem leynigestur með Billie Eilish í besta slotti á Coachella og fjölmiðlar ekki að segja frá því. Hafa þeir ekkert lært af hruninu eða?
Desembermánuður getur verið svo spes þegar maður er með þunglyndi.
Maður getur farið að sofa og allt er frábært en síðan vaknar maður og það er eins og maður hafi breyst í múrstein.
Símtal inn á fréttastofu: „Ég er nú ekki rasisti en ég sá frétt um að það ætti að flytja inn tíu hommaflóttamenn frá Afríku. Er búið að tékka hvort þessir drulludelar séu með alnæmi? Ættum að hugsa fyrst um okkar fólk.“
Stundum er þessi vinna svo gefandi.
Ef þið nennið ekki að flakka milli miðla og viljið hafa allt á einum stað þá getið þið haft þetta í vasanum næstu nótt.
Tek það fram að listinn núna inniheldur random tölur og endurspeglar ekkert. Þurfti bara að vita að þetta virkaði.
Skora á
@RUVohf
að semja um að fá að endursýna gömlu Pokémon þættina. Það er Pokémon æði í yngstu bekkjum landsins og þáttaraðir um efnið að detta á Netflix.
Hér eigum við þegar talsett efni á íslensku sem væri (mögulega) hægt að nýta.
Jóhann hringir í ríkisstofnanir vol. 4.
A: Hjá ríkisstofnun, góðan dag.
J: Já, er X við?
A: Nei, því miður. Það er lokað hjá okkur í dag og allir í fríi.
J: Af hverju í ósköpunum er þá einhver að vinna í símsvörun?
A: Góð spurning.
Eignaðist þessa nýverið og það kom mér á óvart að enginn í kringum mig kannast við þetta meistarastykki. Var ég einn um að hafa lesið hana fram og til baka sem barn?
Næst á lista SDG yfir mögulegan uppruna selsgólsins.
- Járnbrautarlest
- Geimfar
- Kóalabirnir að eðlast
- Kjarnorkusprenging
- Risp í vínylplötu
- Strútur að stíga á gúrku
Hands down fyndnasta mómentið í minni geðheilbrigðismeðferð var þegar starfsmaður sagði mér að vinsamlegast sleppa því að drepa mig því „það yrði svo slæmt fyrir track recordið hans.“
Hugsa reglulega um það og flissa alltaf jafn mikið.
Kærastan er hjúkrunarfræðingur og í endurlífgunarteyminu á LSH. Ég er enn að venjast því þegar hún segir „sorrí, gat ekki svarað, þurfti að stökkva í endurlífgun“ jafn casual og ég segi „sorrí, var á fundi“
Tip til para sem eru hársbreidd frá því sturlast sökum of mikillar samveru: Hjá okkur Ásu býr ímyndaður meðleigjandi sem heitir Solla. Allt sem miður fer í heimilislífinu er Sollu að kenna. Afleiðingin er sú að við hötum hana og sleppum með því við að pirrast út í hvort annað.
Ahh deitnight þegar maður er að nálgast þrítugt, a.k.a. dressa sig upp, borða ógeðslega mikið, fara snemma heim í þægileg föt og horfa á sjónvarpið með rauðvín.
Mörg að kvarta yfir því að jöfnunarsætabixið sé óskiljanlegt. Satt best að segja er það frekar einfalt en til þess fallið að senda frambjóðendur á skauta fram og til baka fram að lokatölum.
Hefði fólk áhuga á einhverri tl;dr útskýringu?
Úr minnisblaði dagsins: „Einnig vil ég benda á að með útbreiddu smiti í samfélaginu þá mun skapast sú hætta að veikindi í fyrirtækjum og atvinnurekstri mun valda verulegri röskun á allri þeirra starfsemi.“
Best að forða því með því að... valda verulegri röskun á starfseminni?
Í gær skrifaði ég Salatbar Kormákur í texta fyrir Fréttablaðið. Ég skil ekki hvernig það gerðist. Í dag er ég sérstaklega þakklátur fyrir prófarkarlesara.
Bað soninn um að taka til í herberginu sínu. Eitt af því sem hann var að skoða var stýrihópur um endurskoðun á þjónustuhandbók herbergistiltektar barnaherbergisins. Þar með var það útrætt.
Sonurinn fékk LEGO í afmælisgjöf. Tvo kubba vantaði. LEGO sendir slíkt frítt heim.
Fyrir það þarf ég að borga 1.033 kr. hjá Íslandspósti. Fyrir sendingu sem kostar núll.
IMO þá er óábyrgt af kjörnum fulltrúum og frambjóðendum að veifa einhverjum kosningasvindlskenningum. Þar til annað kemur í ljós ætla ég að skrifa orðróminn á strangheiðarleg, aulaleg, mannleg mistök.
Lýðræðið þarf ekki á því að halda að fólk fari að vantreysta því.
Stjórnarskrárbreytingin sem öll geta samþykkt:
„Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri hlutbundinni kosningu til fjögurra ára. Birgir Ármannsson skal vera einn þeirra.“
Hugur minn er hjá fyrrverandi yfirmanni,
@kjartanhn
, sem ætlaði úr álaginu sem fylgir starfi ritstjóra yfir í rólegheitin sem aðstoðarmaður landlæknis.
Venjulegt fólk í upphafi greinar: Ég þekki þennan fána
@sarngrim1
: Landsmeistari Túvalú. Úrslit á ÓL '12 en kvefaður '16. Fimmti á heimsleikum æskunnar '09, kom á óvart á Samveldisleikum '17. Slátraði sameiginlegu HM endurskoðenda og lögregluþjóna '19 og er frambærilegur kokkur.
Hvernig er það
@logreglan
eruð þið ennþá að gá til veðurs til að sjá hvort það muni gera norðanáhlaup á næstunni eða er byrjað að sekta þá lögbrjóta sem eru ennþá á spæna upp malbiki og svifryki á nöglunum sínum? Svifryk dregur tugi til dauða árlega og naglar bera mesta ábyrgð.
Það er svo bjánalegt að maður sé að reyna lifa bíllausum lífsstíl á meðan almenningssamgöngur eru jafn áreiðanlegar og frjálslyndi armur Sj��lfstæðisflokksins og snjóþrúgur eru nauðsynlegar til að klofa órudda göngustíga. Nánast verið að ýta manni í að vera á bíl.
Þá sjaldan sem maður er sáttur með sig er nauðsynlegt að klappa sér á bakið.
Fullt starf sem blaðamaður (alltaf í vinnunni semi), föðurhlutverk (með dyggri samvinnu með maka) og fullt nám er heavy kokteill. Allt grænt, engin úrsögn og hæsta meðaleinkunn námsferilsins.
Í tengslum við þetta Boeing mál þarf ítrekað að hringja í Jens Þórðarson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair.
Ég hef hlegið mikið inni í mér í hvert sinn sem einhver á ritstjórninni segir „það þarf að hringja í Jens“ eða „nei nú hringi ég í Jens“.
Að Rússland sé að trítla með „friðargæslulið“ inn í Úkraínu án þess að múkk hafi heyrst frá æðstu ráðamönnum er í besta falli áhyggjuefni.
Herlaust Ísland, sem reiðir sig á að önnur ríki virði landamæri og sjálfsákvörðunarrétt, á að vera fyrst til að mótmæla svona fimleikum.
Að tékka podcast á föstudegi og sjá að Vera Illuga og Í ljósi sögunnar er enn í sumarfríi er nákvæmlega sama tilfinning og að vakna og sjá að maki þinn gisti annars staðar í nótt.
Elska þegar íþróttafólk mætir í viðtöl einlægt og barmafullt af tilfinningum en ekki eins og einhver PR-frasabók.
Geggjuð ganga hjá Snorra svona í byrjun dags.