Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Guðlaug Baldursson aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla.
Guðlaugur, sem er með KSÍ A þjálfaragráðu, hefur mikla reynslu sem þjálfari.
Hann hefur verið aðalþjálfari eða aðstoðarþjálfari í meistaraflokki hjá FH,
ÍBV, ÍR, Keflavík og Þrótti R.