My
@TEDCountdown
talk is live. Thank you
@chrishemsworth
and
@priyankachopra
for the wonderful introduction. It was a rare and unexpected honour to come on stage after Pope Francis with his important message on equality, love and environment
@Pontifex
After 20km of walking with my daughters to see the volcano, northern lights burst through the red volcanic plume and my daughter took this photo. Headlights filled the valley but the blue lights came from our SAR volunteers. Space lights, earth lights, human lights.
"We see the violent fire of a burning oil refinery as a disaster, forgetting that the oil was meant to burn anyway. We are blind to the everyday disaster of functional operations."
@gunnarulfars
Þið eruð 7 starfsmenn
@vidskiptarad
og kostið 130 milljónir til að vinna gegn menningu. Launasjóður rithöfunda er 250 milljónir og skiptist á 80 einstaklinga. Fyrirtæki landsins hefðu getað styrkt 40 höfunda sem hefðu skapað þúsundföld verðmæti á við þessar skýrslur ykkar.
Að enginn skyldi farast í skriðunni á Seyðisfirði er kraftaverk. Um 40 manns þurftu hver og einn að flýja í hárrétta átt, án þess að vita rétta átt. Frændi sem varð vitni sagði: Eins og að horfa á þotu brotlenda og alla stíga heila út, að kasta 40 teningum og fá sex á öllum.
According to
@saevarhb
our new volcano emmits about 3000 tons per day of CO2. Human activity is about 150 million tons per day. So humans are like 50.000 volcanoes like this one.
#youarethevolcano
Geisladrif
Stöldrum aðeins við:
Geisladrif
er það ekki fallegt orð?
amma hefði sagt að geisladrif
væru sólstafir
yfir Keili
guð og englar í geisladrifi
nú úreldast geisladrifin
og orðið er aftur frjálst
,,Þegar ég hugsa til þín
fyllist hugur minn geisladrifi“
Þú segir: Á hverjum degi
styttist tíminn
sem við eigum eftir.
Skref fyrir skref
færumst við nær
dauðanum
- en ég þræði dagana
eins og skínandi perlur
upp á óslitinn
silfurþráðinn
Á hverju kvöldi
hvísla ég glöð
út í myrkrið:
Enn hefur líf mitt
lengst um heilan dag
Hvalveiðar með sprengiskutli eru eins og að elta fíla og skjóta þá með skriðdreka. Íslendingar eiga enga hvalveiðihefð og hvalkjöt er ekki hluti af matarhefðinni. Það er skömm að veiðar á fegurstu og stærstu skepnum sem jörðin hefur alið séu stundaðar, hvað þá leyfðar.
Það er ekki gert ráð fyrir aðkomu gangandi fólks að Orkuhúsinu við Urðarhvarf. Einhver hannaði þetta, samþykkti, fjárfesti. Einhver líklega á miðjum aldri sem gæti átt eftir 20 ár af svona skemmdarverkum.
Í stóra máli dagsins er ljóst að ein manneskja gæti verið þjófur en hinn aðillinn er greinilega 100% rasisti. Hið fyrrnefnda er pirrandi en hið síðarnefnda hefur valdið mannkyninu meiri þjáningum en nokkuð annað í veröldinni - og því sýnu alvarlegra.
I repeat my call for a humanitarian ceasefire in the Middle East, the unconditional release of all hostages, and the delivery of life-saving supplies at the scale needed.
Everyone must assume their responsibilities.
This is a moment of truth.
History will judge us all.
Child in Iceland roasting marshmellows on new lava. (Not april fools.) The eruption is steady, with a river of fire filling the valley, tremendous beauty, feels safe. Families having picnics in the cozy warmth.
Fyrir veiruna höfum við þolað sóttkví, bólusetningar, samkomubönn, ferðatakmarkanir, lokanir, frestanir á öllu - getur einhver nefnt óþægindi sem hann hefur undirgengist til að sporna við loftslagsbreytingum? (Að kaupa Teslu eru ekki marktæk óþægindi.)
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Í flugskírteininu hennar ömmu er táknrænt risa-smáatriði. Þar stendur fæddur og - strikað yfir - ur. Tungumálið gerði ekki ráð fyrir stelpum.
Það er talað um að auka ,,framlög til loftslagsmála." Er það ekki eins og sá sem hættir að reykja segist þurfa ,,að auka framlög til reykingamála". Þetta er spurning um að kaupa minna af einhverju sem á að brenna eða veldur bruna. Hvað kostar að auka framlög til neysluminnkunar?
Það er lestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu, um 200.000 laustengdir vagnar sem eru ekki samtengdir af hugmyndafræðilegum ástæðum, ekki praktískum. Lestin er samtals um 1000km löng. Margfalt lengri en lengsta járnbrautarlest í heimi.
Ný skýrsla segir þetta: "Tekjur af útflutningi ál, álafurða og kísiljárns voru 308,4 milljarðar króna árið 2021. Nemur það ríflega 39% af heildartekjum Íslands af útflutningi vöru á því ári. Undirstrikar þetta mikilvægi greinarinnar fyrir þjóðarbúið.”
Örvunarbólusettur áhrifavaldur í úrvinnslusóttkví finnur fyrir gerendameðvirkni en hættir við læk á samfélagsmiðli þegar nýr óróapúls mælist skammt frá Grindavík. …heimurinn kannski að farast en íslenskan nær að orða þetta…
Góðan dag er þetta
@logreglan
? Borgaraleg tilkynning frá málfarslöggu hér. Það var dularfullur bíll á ferð fyrir norðan merktur POLICE með c-i. Ensk lögga með íslensk númer samt, nema enska sé opinbert tungumál hér? Af hverju ekki bara polizei? Carabineri?
Tolkiens house is for sale. Arndís, my grandfathers sister was a nanny for Tolkien, when he was starting the Hobbit in 1930, she took these pictures of the family.
@serpentstail
@ProjNorthmoor
Ok-glacier is no longer a glacier. The first of many Iceland will lose to climate change. I made the text for this plaque with a letter to the future with
@DominicBoyer
,
@CymeneHowe
, Rice University and Oddur Sigurðsson geologist, to be placed where the glacier was.
Fyrir mörgum árum var umræðan hér á landi ál eða dauði. Að fórna hálendinu var sett fram sem lífsspursmál. Menn spurðu, hvað eigum við að gera í staðinn? Eigum við að fara aftur í torfkofana?
Hope the next virus is an international computer virus. No Zoom or Netflix for a year - or Twitter. The only thing we can do is listen to old cassettes, go to libraries for information party locally and argue politics in the community hall.
Uppáhalds gráminn á Höfuðborgarsvæðinu er í Kórahverfinu. Grár himinn, gráar blokkir með þverliggjandi gráu bárujárni og grá knattspyrnuhöll. Verktakinn sparaði litinn og innleysti sem hagnað. Einhver hissa þótt fólk sæki í hugvíkkandi efni?
#50shadesofgrey
@gislimarteinn
Gengur vegakerfið upp? Umferðarslaufurnar? Borga þær sig? Malbikun, breikkun, fræsing, nagladekk, gengur upp að halda börnum innandyra. Eru bílar góð fjárfesting? Hver hefur erft bíl frá afa sínum? Bílaframleiðsla, bráðnun jökla. Gengur ekki upp.
Hér er á ferðinni draugur sem átti að vera löngu kveðinn niður. Tekjur Alcoa í milljörðum eru EKKI tekjur Íslendinga eða tekjur ,,okkar”. Þessi framsetning veldur misskilningi og býr til nýlenduáhrif.
The birth of a new eruption just now in Iceland. Fourth one in three years. Not a Disney tourist eruption this time, threatens the town of Grindavík, The Blue Lagoon and the HS Orka Geothermal plant.
Það er kapp í mér að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri, jú ég er til í að lúffa fyrir Arnaldi, hann er kóngurinn, og fínt að skáka glæpadrottningu. En að Ketó Hormólausnin verði mest selda bók ársins á Íslandi. Aldrei!
Niðurstaðan af þessu tvíti er að undir forystu woke forsætisráðherra, hönnuðu woke verkfræðingar varnargarð sem var ýtt upp af að minnsta kosti einum woke gröfumanni. Annars áhugavert að meira að segja eldgos má nýta í menningarstríðin, þau voru eitt sinn svo sameinandi.
DES 2015: ,,Í húsinu er ekkert símasamband og engar brunaútgönguleiðir fyrir utan aðalinnganginn upp á aðra og þriðju hæð. Ef kviknaði í stigaganginum yrði fólk að steypa sér gegnum gluggana af 2-3 hæð eða verða eldsmatur."
“If the global oil production of 100 million barrels a day, was running in a single river, the flow would be 185 cubic meters per second. The same as the flow in Dettifoss. Imagine this waterfall as a flow of oil and set it on fire.” On Time and Water, August 6th
@serpentstail
Það er eitthvað óþægilegt hvernig Samtök Atvinnulífsins eiga umræðuna. Það þarf að byggja 30.000 íbúðir og tvöfalda raforkuframleiðslu, eins og kínverskar tilskipanir um magn. Maður verður lítið var við umræðu um gæði byggðar, samgöngur eða umhverfismál almennt. Bara magn.
Sá sem gefur bók gefur margfalda gjöf. Þeir sem gáfu Þórberg og Laxness gáfu okkur Þórberg og Laxness. Mikilvægt að fagna sterkri skáldakynslóð sem er að koma upp Fríða Ísberg, Þórdís Helgadóttir, Jónas Reynir svo fáir séu nefndir...
The summer when I was 7 was almost 5% of my life. Thats why it felt endless, 5% of my life now is almost 1000 days, summer vacation needs to be 2 1/2 years to match the summers of my youth.
My grandfather died last Friday in New Jersey, the 4th of October. The New York Times writes an interesting obituary here, the Shah of Iran and the death of Andy Warhol.
Innlegg í stóra Olís málið. Við eigum að vera löngu hætt að selja bensín, fyrirtækið er hluti af hagsmunahópi sem hefur tafið umskiptin. Það ætti að vera bannað að auglýsa bensín eins og tóbak. Hvað er líklegt að Olís lifi lengi og lifir það breytinguna?
Apple hannar símann minn svo einungis Apple Pay virkar. Er frábært að gefa þeim prósentu af hverri færslu og væntanlega allar upplýsingar samtímis tengdar öllum öðrum upplýsingum? Af hverju erum við eins og klappstýrur þegar Amazon, Apple, Google, Facebook etc. gleypir heiminn.
I saw this footage before I saw the caption. I was trying to recognising the mountains from my highland walks in Iceland when I noticed it was footage from Mars.
Wrote about the new volcanic era we are entering around Reykjavik. The sweet Disney volcanoes of the last three years are turning into something a bit more serious.
Earthquakes today and last week here in Reykjavik. More trembling than in my entire lifetime. House shaking but nothing fallen or broken, just this constant uncanny trembling, a sizzling vibration, like light change of air pressure. Eruption alert.
Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur hefði orðið 60 ára í dag. Hann hafði mikil áhrif á mig, í verkum og almennu viðhorfi til listarinnar.
Er hægt að færa rök fyrir því að Íslendingar séu almennt illa tengdir við hafið? Íslenskt barn ætti að hafa æði fyrir hafinu, þekkja alla hvalina, höfrungana og hvenær þeir koma. Þekkja furðufiskana. Við myndum ekki segja ,,hvalir" eins og gert er ef þekkingin væri djúp.